Laun greidd 30. júní

Vakin er athygli á því að leiðréttingar vegna nýrra kjarasamninga Kjalar, Sameykis, Félags íslenskra náttúrufræðinga, Félags leikskólakennara og Félags grunnskólakennara ásamt sáttargreiðslu Kjalar og Sameykis koma til greiðslu 30. júní en birtast á sér launaseðli. Upphæð vegna leiðréttingarinnar er greidd í sér millifærslu og munu því þeir sem eru í starfi fá tvo launaseðla og launin greidd í tveimur millifærslum. Launaseðill vegna leiðréttingar og sáttargreiðslu gæti birtist seinna en hinn inn á island.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan