- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Í samræmi við ályktun um jafnréttismál hefur jafnréttisnefnd BSRB unnið að gerð kynjabókhalds. Í kynjabókhaldinu er að finna upplýsingar um hin ýmsu kynjahlutföll innan BSRB og þar gefur að líta gröf og línurit yfir kynskiptingu félagsmanna, stjórna aðildarfélaga, stjórnar og skipaðra fulltrúa á vegum BSRB. Einnig hlutfall kvenna og karla innan aðildarfélaga BSRB og hlutfallslega skiptingu félags-, stjórnar-, og nefndarmanna innan aðildarfélaga. Kynjabókhaldið er nú gefið út í fyrsta sinn en stefnt er að árlegri útgáfu. Ábyrgðarmaður kynjabókhaldsins er Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB og starfsmaður jafnréttisnefndar.
Kynjabókhald BSRB