Könnun um líðan, heilsu og starfstengd viðhorf starfsfólks Akureyrarbæjar

Fimmtudaginn 5. maí nk. verður send út könnun til allra starfsmanna Akureyrarbæjar sem eru í meira en 30% starfshlutfalli. Könnunin verður send á netföng starfsmanna en þeir sem hafa ekki netföng munu fá upplýsingar um það hvernig þeir geta nálgast könnunina á vinnustað sínum.

Í könnuninni er spurt um líðan, heilsu og starfstengd viðhorf starfsfólks sveitarfélagsins á tímum efnahagsþrenginga. Sams konar könnun var gerð í fyrra og eru kannanirnar hluti af doktorsverkefni Hjördísar Sigursteinsdóttur í félagsfræði við Háskóla Íslands. Með könnuninni er einnig verið að uppfylla markmið í mannauðstefnu og jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.

Starfsfólk er vinsamlega beðið um að svara spurningalistanum eins ítarlega og það treystir sér til. Það tekur u.þ.b. 10-15 mínútur.  Ef starfsfólk lendir í vandræðum með að nálgast könnunina eða hefur frekari spurningar er hægt að hafa samband við Dagnýju Bolladóttur (dagnyb@akureyri.is) eða Ingunni H. Bjarnadóttur (ingunn@akureyri.is) hjá Starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar í síma 460 1060 eða með tölvupósti.

Rannsóknin veitir mikilvægar upplýsingar sem gagnast til að stuðla að bættu starfsumhverfi. Starfshópur var skipaður síðastliðið vor sem fékk það verkefni að fylgja niðurstöðum könnunarinnar eftir og gera tillögur um aðgerðir. Starfshópurinn hefur t.a.m. komið á námskeiðum um starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur og boðið upp á námskeið um einelti fyrir vinnustaði bæjarins.

Í könnuninni, sem gerð var í fyrra, var svarhlutfall nokkuð gott eða tæplega 64% og gaf þar af leiðandi góða vísbendingum um líðan starfsfólks Akureyrarbæjar. Þegar á heildina var litið voru niðurstöður könnunarinnar mjög ánægjulegar og virtist starfsfólk Akureyrarbæjar almennt ánægt í starfi. Niðurstöður gáfu til kynna að 88,1% starfsmanna voru mjög eða frekar sammála fullyrðingunni ?þegar á heildina er litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu? og stærsti hluti starfsmanna eða 76,4% var ánægður með stjórnun vinnustaðarins þannig að þessir starfsmenn sögðust vera mjög oft eða alltaf ánægðir með stjórnunina.

Hér er hægt að nálgast niðurstöður könnunarinnar frá því í fyrra.

Starfsfólk er eindregið hvatt til þess að svara spurningalistanum og leggja þannig rannsókninni lið og stuðla að bættu starfsumhverfi fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan