Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð

Sr. Þórhallur Heimisson verður með námskeiðið "Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð" í Safnaðarheimili Glerárkirkju á Akureyri þann 28. janúar næstkomandi. Um heilsdags námskeið er að ræða – byrjar kl.10.00 og stendur til 16.00 með hádegishléi.

Almennt verð er 12.000 kr. fyrir parið en Þórhallur býður starfsmönnum Akureyrarbæjar afslátt og er þá verð til starfsmanna 8.000 kr. fyrir parið.

Markmið námskeiðanna er að veita hjónum og sambýlisfólki tækifæri til þess að skoða samband sitt í nýju ljósi, styrkja það og efla og tileinka sér aðferðir sem hjálpa þeim til að öðlast betra líf saman. Hvert par nálgast viðfangsefnið á sínum forsendum. Efnið er kynnt með fyrirlestrum og í samtölum.

Fyrir nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningu er haft samaband við Þórhall á netfanginu thorhallur33@gmail.com – taka skal fram við skráningu eða fyrirspurn að viðkomandi sé starfsmaður Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan