Hraðlestrarnámskeið - tilboð til starfsmanna

Hraðlestrarskólinn býður starfsmönnum Akureyrarbæjar og fjölskyldum þeirra sérstakt tilboð á hraðlestrarnámskeið sem haldið verður á Akureyri 28 .og 29. maí.

Algengur árangur er um tvöföldun á lestrarhraða og um leið betri lestrarskilningur. Á námskeiði sem var síðustu helgi í Reykjavík náði hópurinn að rétt tæplega þrefalda lestrarhraðann og hafði um 20% betri lestrarskilning.

Almennt nefnir starfsfólk hve mikinn mun það finnur á betri yfirsýn í starfi, auðveldara að undirbúa fundi, námskeið eða að komast í gegnum vinnugögn (t.d. tölvupóstar, skýrslur o.s.frv.)

Hraðlestrarskólinn býður starfsfólki Akureyrarbæjar námskeiðið á kr. 32.500 kr. en almennt verð er kr. 39.500.

Nánari upplýsingar er að finna hér: http://www.h.is/akureyri

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan