Hlíðarfjall - tilboð til starfsmanna

Starfsfólki Akureyrarbæjar gefst kostur á að kaupa vetrarkort í Hlíðarfjall á kr. 26.000, venjulegt verð er kr. 32.000. Sýna þarf haus af launaseðli þegar kortið er keypt. Hægt er að kaupa vetrarkortin í skíðaskálanum.

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður formlega opnað laugardaginn 24. nóvember kl. 10 árdegis. Talsvert hefur snjóað síðustu daga og þónokkurt magn af snjó náð að festast í brekkunum. Að auki hefur verið nægilega kalt til að snjóframleiðsla hafi gengið nokkuð vel. Á laugardaginn verður Fjarkinn settur í gang og að auki Hólabraut og Töfrateppið fyrir yngri kynslóðina. Opnunin núna er á svipuðum tíma og verið hefur undanfarin ár.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan