Hlíð 50 ára Mánudagsmálstofur

Sjötta málstofa Öldrunarheimila Akureyrar á 50 ára afmæli Hlíðar verður haldin í samkomusalnum í Hlíð mánudaginn 2.júlí kl. 12:15 – 12:45. Heiti málstofunnar í þetta sinn er:

 “Þankareik afdankaðs heimilislæknis um ellina”

 Pétur Pétursson fyrrverandi heimilislæknir og hagyrðingur veltir fyrir sér lækningum aldraðra. Pétur er þekktur fyrir að tala tæpitungulaust um hlutina og verður áhugavert að heyra hans skoðun á málum.

                Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan