- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Vinnustaðaátakið Hjólað í vinnuna hefst miðvikudaginn 4. maí og stendur til 24. maí.
Heilsuráð Akureyrarbæjar mun veita viðurkenningar til starfsstöðva innan Akureyrarbæjar fyrir góðan árangur í átakinu.
Heilsuráð hvetur vinnustaði stóra sem smáa til að skrá sig til leiks og hjóla sig inn í sumarið! Tekst einhverjum að ógna einokun Síðuskóla, Lundaskóla og Lundarsels á viðurkenningum í átakinu?
Skráning er hafin og fer fram á http://hjoladivinnuna.is/
Fjölmennum sem aldrei fyrr í Hjólað í vinnuna!
Átakið Akureyri á iði er einnig hafið og skoða má fjölbreytta dagskrá hér: http://www.akureyri.is/ithrottamal/akureyri-a-idi