- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Íþróttaráð Akureyrarbæjar hefur ákveðið að veita viðurkenningu til þess vinnustaðar Akureyrarbæjar sem stendur sig best í keppninni Hjólað í vinnuna. Vinnustaðakeppnin hefst í dag 9. maí og stendur til 29. maí.
Íþróttaráð hvetur fyrirtæki og einstaklinga á Akureyri til þátttöku í verkefninu og taka þannig þátt í að auka almenna lýðheilsu Akureyringa.
Allar nánari upplýsingar um átakið er að finna á heimasíðunni www.hjoladivinnuna.is