Hjólað í vinnuna hefst á morgun!

Hjólað í vinnuna hefst miðvikudaginn 7. maí og stendur til þriðjudagsins 27. maí. 

Skráning fer fram á www.hjoladivinnuna.is

Eins og undanfarin ár veitir íþróttaráð Akureyrarbæjar viðurkenningar til vinnustaða bæjarins fyrir góða frammistöðu. Í fyrra fengu Síðuskóli og Öldrunarheimilið Hlíð viðurkenningu en árið 2012 Amtsbókasafnið, Leikskólinn Pálmholt og Síðuskóli.

Allar upplýsingar um skráningu og þátttöku er að finna á vefnum www.hjoladivinnuna.is

Starfsfólk á vinnustöðum Akureyrarbæjar er hvatt til að fjölmenna til leiks.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan