Hin hliðin: Elín Eyjólfsdóttir

Elín Eyjólfsdóttir sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni. Hún starfar sem skrifstofustjóri Giljaskóla eða er reddarinn eins og hún orðar það. Elín kemur úr Hrútafirði.


Hvað er skemmtilegast við starfið þitt?
Samstarf og samskipti við mjög margt fólk, svo er ég alltaf að kynnast nýju fólki sem er frábært.
Fjölskylduhagir?
Gift Kristjáni Val og við eigum tvær dætur.
Áhugamál?
Hlusta á tónlist, föndra og hugsa um litla hundinn sem við fjölskyldan vorum að fá.
Uppáhalds matur og drykkur?
Nautalund með frönskum, bernaise sósu og Fanta með.
Hvaða bók ertu að lesa?
Enga eins og er.
Besti sjónvarpsþáttur?
Friends
Fallegasti staður á Íslandi?
Ásbyrgi
Besta erlenda borgin?
Edinborg
Hvaða lag kemur þér í stuð?
Ef lag er í hressari kantinum og góður taktur þá kemst ég auðveldlega í stuð
Uppáhalds tónlistarmaður / hljómsveit?
Celine Dion
Uppáhalds leikari?
Sandra Bullock
Leyndir hæfileikar?
Pass :)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan