Heilsuráð stendur fyrir gönguferð í Kjarnaskógi 24. júní

Gönguleiðir í Kjarnaskógi
Gönguleiðir í Kjarnaskógi

Þriðjudaginn 24. júní kl. 17:30 ætlar heilsuráð Akureyrarbæjar að standa fyrir gönguferð um Kjarnaskóg fyrir starfsfólk bæjarins.

Í boði verða tvær gönguleiðir. Annars vegar styttri leið sem kemur til með að taka ca. hálftíma og hins vegar leið sem tekur um klukkustund.

Skógræktarfélag Eyfirðinga mun segja frá skóginum í stuttu máli og veita leiðsögn í lengri leiðinni. Leiðsögumaður mun einnig fylgja hópnum sem fer styttri leiðina.

Heilsuráð hvetur alla vinnustaði til þess að nýta tækifærið og njóta útivistar saman í góðum félagsskap.

Að sjálfsögðu eru vinir og vandamenn velkomnir með.

Mæting er við Kjarnakot – bílastæðið neðst.

Vonandi sjá sér sem flestir fært að mæta.

Heilsuráð,

Alma, Ellert og Karl

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan