Góði Dátinn Svejk í Freyvangsleikhúsinu - Tilboð til starfsmanna

Freyvangsleikhúsið sýnir um þessar mundir leikritið Góði Dátinn Svejk eftir Jaroslav Hasek í leikgerð Colin Teevan. Leikstjóri er Þór Tulinus. Af því tilefni býður Freyvangsleikhúsið starfsmannafélögum og öðrum hópum tilboðsverð á sýningar. Miðaverð á sýninguna er 2.900 krónur en hópar sem telja 15 eða fleiri geta fengið afslátt af því verði.

Góði Dátinn Svejk er drepfyndin ádeila á stríðsrekstur og hefur verkið verið sýnt hér á Íslandi nokkrum sinnum við góðar undirtektir. Bókin á stóran og fjölbreyttan hóp aðdáenda á öllum aldri hér á landi. Óhætt er að lofa stórgóðri kvöldstund í Freyvangsleikhúsinu með Svejk og félögum.

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá með því að hringja í síma 857-5598 eða senda póst á netfangið freyvangur@gmail.com.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan