Fréttir af heilsuráði

Miðvikudaginn 22. október stóð Heilsuráð Akureyrarbæjar fyrir fyrirlestrinum „Allt að vinna engu að tapa“ þar sem Sonja Sif Jóhannsdóttir, master í íþrótta- og heilsufræðum fjallaði  um mikilvægi góðrar næringar sem grunn að góðri heilsu. Góð mæting var á fyrirlesturinn sem fór fram í Rósenborg og fullvíst að gestirnir gengu út fullir af fróðleik um hvernig má gera betur í mataræðinu.

Heilsuráð mun bjóða upp á dans í nóvember sem verður auglýstur þegar nær dregur.

En það er víðar sem heilsuefling er á milli tannanna á starfsmönnum Akureyrarbæjar því Heilsueflingarnefndir eru starfræktar á flestum vinnustöðum sem standa fyrir uppákomum fyrir sína vinnustaði. Oddeyrarskóli hefur til að mynda verið á miklu flugi síðustu vikur. Þar var blásið til heilsuviku í haust þar sem ýmislegt var tekið fyrir er varðar andlega og líkamlega heilsu. Þátttaka starfsmanna var mjög góð og það var mikið stuð á starfsfólki þessa viku.

Lesa má um uppákomur vikunnar á heimasíðu skólans.

Heilsueflingarnefndin í Oddeyrarskóla hefur einnig komið á vikulegum gönguferðum sem hafa verið nokkuð vel sóttar og svo var skipulagður Zumbað tími og nú er á stefnuskránni að hafa jógatíma.

Vel gert Oddeyrarskóli!

 

Er heilsuefling í gangi á þínum vinnustað? Deildu því með okkur og sendu línu á formann Heilsuráðs Akureyrarbæjar á netfangið almarun@akureyri.is     

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan