Framtíðarsýn leikskólans - átta landshlutafundir

Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands, vegna Félags leikskólakennara annars vegar og Félags stjórnenda leikskóla hins vegar, hafa ákveðið að halda átta fundi, einn í hverjum landshluta, til að ræða sameiginlega framtíðarsýn leikskólans. Er það gert á grundvelli bókunar með kjarasamningi sömu aðila sem tóku gildi vorið 2011. Samið hefur verið við Capacent um að stýra verkefninu. Gert er ráð fyrir að 40-50 manns sæki hvern fund fyrir utan höfuðborgarsvæðið en áætlað er að um 120 manns sæki þann fund.

Til að tryggja jafnvægi fulltrúa úr skólasamfélaginu verða fundarmenn valdir af landshlutasamtökum sveitarfélaga, samráðsnefnd FSL, svæðadeildum FL og Heimili og skóla - landssamtökum foreldra. Með því móti eiga allir aðilar sína málsvara á fundinum. Gert er ráð fyrir að hver fundur taki 3-4 klukkustundir og hefjist á stuttu inngangserindi. Afrakstur fundanna verður stefnuskjal sem er hugsað sem grundvöllur að framtíðarsýn leikskólans, með leiðum og aðgerðum um það hvernig leikskólastarfi verði best hagað með hagsmuni leikskólabarna að leiðarljósi.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir (með fyrirvara um breytingar): 

Dags.: Landshluti: Fundarstaður: Tími:
25.03.2014 Vesturland Menntaskólinn í Borgarnesi 13:00-17:00
26.03.2014 Reykjanes Eldey 13:00-17:00
27.03.2014 Norðurland vestra Félagsheimilið Blönduósi 13:00-17:00
31.03.2014 Norðurland eystra Brekkuskóli, Akureyri 13:00-17:00
02.04.2014 Vestfirðir Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði 14:00-17:30
07.04.2014 Suðurland Hótel Selfoss 13:00-16:30
08.04.2014 Austurland Hótel Hérað 13:00-16:30
09.04.2014 Höfuðborgarsvæðið Fundarstaður í vinnslu 13:00-17:00
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan