- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Viðbrögð starfsmanna við tilboði á árskortum í Sundlaugar Akureyrar hafa verið góð í febrúar og því sönn ánægja að koma því á framfæri að til og með 31. desember 2013 stendur starfsmönnum Akureyrarbæjar til boða að kaupa árskort í Sundlaugar Akureyrar á 50% afslætti. Fullt verð á árskorti skv. gjaldskrá 2013 er kr. 32.500.
Tilboð og kjör á sundkortum fyrir árið 2014 verða skoðuð og metið út frá því hversu margir hafa nýtt sér tilboðið.
Starfsmenn þurfa að sýna skilríki og haus af síðasta launaseðli í afgreiðslu Sundlaugar Akureyrar til að geta tryggt sér þetta magnaða heilsueflingartilboð.
Öðrum fyrirtækjum og hópum stendur einnig til boða afsláttur af árskortum í Sundlaugar Akureyrar í samræmi við samþykkt Íþróttaráðs frá 6. desember 2012. Í lok febrúar fór út auglýsing um tilboðskjör til fyrirtækja á Akureyri. Fyritæki og hópar sem ekki hafa fengið upplýsingar um tilboðskjör geta leitað nánari upplýsinga hjá forstöðumanni Sundlaugar Akureyrar í síma 461-4455.