- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Þann 7. september síðastliðinn voru fjórir starfsmenn sem unnið hafa hjá Akureyrarbæ í 40 ár eða lengur heiðraðir fyrir vel unnin störf. Þetta eru þau Helgi Friðjónsson verkstjóri ferliþjónustu, Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi, Regína Þorbjörg Reginsdóttir starfsmaður á öldrunarheimilinu Hlíð og Sigurður Gunnarsson byggingastjóri hjá umhverfis- og mannvirkjasviði bæjarins.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri Helgi, Hrafnhildur, Sigurður, Regína og Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar.