Auglýst eftir umsóknum um TV einingar vegna verkefna og hæfni - Athugið breyttar reglur

Akureyrarbær auglýsir eftir umsóknum um TV einingar vegna verkefna og hæfni.

Vakin er athygli á því að kjarasamninganefnd hefur gert breytingar á reglum um TV einingar og umsókna- og umsagnarformum. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar vel og nota núgildandi form fyrir umsóknir og umsagnir.

Í kjarasamningum sambands íslenskra sveitarfélaga við aðildarfélög BHM , Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og KÍ vegna Félags leikskólakennara er ákvæði um að heimilt sé að greiða launaviðbætur á sérstökum forsendum (svokölluð TV laun) vegna verkefna og hæfni annarsvegar og vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna hinsvegar.

Umækjendur þurfa að skila umsóknum til embættismanna fyrir 31. ágúst nk.

Umsóknir ásamt umsögnum embættismanna eiga að berast til Starfsmannaþjónustu fyrir 15. september nk.

Reglur um TV einingar

Umsagnarform

Umsóknarform

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan