Auglýst eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla - Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2011-2012.? Umsóknarfrestur er til og með 15.febrúar 2011.

Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2011-2012. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2011. 

Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum.

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verkefna sem tengjast:

Kennslu í stærðfræði og öðrum raungreinum.

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á vefsíðu Endurmenntunarsjóðs grunnskóla.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan