- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Í kjarasamningum aðildarfélaga BHM, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og KÍ vegna Félags leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga er ákvæði um að heimilt sé að greiða launaviðbætur á sérstökum forsendum (svokölluð TV laun) vegna verkefna og hæfni annarsvegar og vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna hinsvegar.
Auglýst er eftir umsóknum um TV-einingar vegna verkefna og hæfni. Umsóknir skulu berast starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar fyrir 8. maí 2012 á eyðublöðum sem finna má í starfsmannahandbók á vef Akureyrarbæjar, sjá slóðina http://www.akureyri.is/starfsmannahandbok/kjaramal/timabundinvidbotarlaun. Þar er einnig að finna reglur Akureyrarbæjar um TV-einingar.