Ársskýrslan komin á vefinn

Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2012 er nú aðgengileg á heimasíðu bæjarins ásamt eldri skýrslum allt frá árinu 2000. Í skýrslunni er stiklað á stóru í starfsemi deilda og stofnana bæjarins. Árið 2012 var með eftirminnilegum hætti fagnað 150 ára afmæli kaupstaðarins og skýrsluna prýða valdar ljósmyndir frá hátíðarhöldunum.

Áhugasamir geta eignast prentað eintak af ársskýrslunni og nálgast það í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Hér getur þú skoðað ársskýrslur Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan