ÁRSHÁTÍÐ STARFSFÓLKS AKUREYRARBÆJAR 2012

ÁRSHÁTÍÐ 2012!
ÁRSHÁTÍÐ 2012!

Kæra samstarfsfólk. Þá er árshátíðin alveg að bresta á en hún verður haldin með pompi og prakt í íþróttahöllinni laugardagskvöldið 3. mars  ef einhver hefur gleymt því.

Húsið opnar kl. 19:00 og munið að mæta tímanlega. Borðhald hefst síðan kl. 20:00 með þriggja rétta veislu frá Bautanum. Hljómsveitirnar Hvanndalsbræður og Einn&sjötíu leika fyrir dansi og veislustjóri verður Hildur Eir Bolladóttir. Frábær skemmtiatriði í boði og aðgöngumiðar gilda sem happdrættismiðar.

Það hefur frést meðal annars af Indverjum, Spánverjum, Sígaunum, Hollywood stjörnum, ævintýrafólki, Föðurlandsvinum og fólki frá Litalandi sem muni mæta ... Það verður svo sannarlega kátt í höllinni!

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan