Áreitni á vinnustöðum, NEI TAKK!


Fundur með yfirheitið Áreitni á vinnustöðum, NEI TAKK! verður haldinn á Grand hótel Reykjavík fimmtudaginn 11.janúar frá kl. 8.00-10.30.
Markmið fundarins er að vekja athygli á mikilvægi forvarna á sviði vinnuverndar með áherslu á einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Hægt er að fylgjast með fundinum á netinu á slóð sem birt verður á heimasíðu Vinnueftirlitsins þegar fundurinn hefst á fimmtudagsmorguninn.
Fundurinn er haldinn að frumkvæði stjórnar Vinnueftirlits ríkisins þar sem sæti eiga fulltrúar stærstu samtaka aðila vinnumarkaðarins auk fulltrúa ráðherra.
Á heimasíðu Vinnueftirlitsins má finna dagskrá fundarins og allar frekari upplýsingar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan