20% afsláttur á söngleikinn Hárið um páskana fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar

Starfsfólki Akureyrarbæjar býðst 20% afsláttur á söngleikinn Hárið um páskana.

Söngleikurinn Hárið verður sýndur í Hofi á Akureyri laugardaginn 16. apríl og verður hluti að Páska-dagskránni á Akureyri þetta árið.

Nokkur sæti eru laus á sýningu kl 20:00 og bætt hefur verið við auka sýningu kl 23:00.

Öllu verður til tjaldað svo að kvöldið verði sem glæsilegast og skemmtilegast.

Þarna verða að sjálfsögðu öll bestu lögin, Að eilífu, Manchester, Frank Mills, Hár, Ég á líf, Blikandi stjörnur og Lifi ljósið. Öll þessi lög og fleiri verða svo fléttuð saman með sögunni sem hefur farið sigurför um heiminn síðustu áratugi. Til að gera þessu skil verða á sviðinu sjö leikarar, fimm manna hljómsveit og tíu manna kór.

Starfsfólk Akureyrarbæjar fær 20% afslátt af miðakaupum.

Fullt verð á sýninguna er 7.900 kr en starfsmenn fá miðann á 6.320 kr.

Það eina sem þú þarft að gera er að smella á linkinn hér fyrir neðan og klára miðakaupin áður en það verður uppselt á þennan skemmtilega viðburð.

https://tix.is/is/mak/specialoffer/uedcknjphflbk

 

Um að gera að gera sér glaðan dag um páskana upplifa þennan frábæra söngleik.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan