Vinnustaðaátakið „Hjólað í vinnuna" hófst í dag 6. maí og stendur til 26. maí.
Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv.
Anna Lóa hjá Virk gefur góð ráð á álagstímum. Eitt það fyrsta sem fer í álagi er hæfileiki okkar til samskipta. Við þurfum að vera meðvituð um hvernig við bregðumst við álagi, hvaða bjargráð virka fyrir hvert og eitt okkar og mikilvægi þess að nýta þau á óvissutímum.
Framundan hjá SÍMEY eru spennandi fjarnámskeið og greiða eftirfarandi starfsmenntasjóðir þátttökugjald að fullu fyrir sína félagsmenn. Þetta eru starfsmenntasjóðir Einingar-Iðju, Kjalar og Sameykis.
Komin er inn síða í starfsmannahandbók þar sem helstu spurningum varðandi sóttkví og fjarvistir vegna COVID-19 er svarað.
Við gerum ráð fyrir því að fleiri spurningar, og þar með svör, kunni að bætast við þegar fram líða stundir og mun listinn verða uppfærður samkvæmt því.
Til hægri á meginsíðu er hnappurinn Sóttkví og fjarvistir v. COVID-19: spurt & svarað og leiðir hann ykkur á síðuna sem er á eftirfarandi slóð:
https://www.akureyri.is/starfsmannahandbok/moya/page/sottkvi-spurt-svarad-1
Á fundi bæjarstjórnar 3. desember sl. voru samþykktar reglur um notkun á merki bæjarins og hönnunarstaðall. Þetta er í fyrsta skipti sem sveitarfélagið vinnur í samræmi við hönnunarstaðal en í honum er fjallað um notkun byggðarmerkis bæjarins og meðferð á gögnum og markaðsefni í nafni Akureyrarbæjar og er tilgangurinn að veita skýrar leiðbeiningar um samhæfða og stílhreina framsetningu gagna og kynningarefnis um starfsemi bæjarins. Öll svið og stofnanir bæjarins skulu fylgja hönnunarstaðlinum.
Í þeim kjarasamningum sem búið er að samþykkja hjá sveitarfélögum var gerð breyting á texta um útborgun launa en í grein 1.1.1.1 segir að:
1.1.1.1 Föst laun skulu greidd eftir á, eigi síðar en fyrsta dag hvers mánaðar. Beri fyrsta dag mánaðar upp á frídegi skal útborgun launa fara fram síðasta virka dag þar á undan.
Sami texti mun koma í alla samninga sem gengið verður frá á næstu mánuðum og er fyrirkomulag útborgana í samræmi við breytt ákvæði kjarasamninga.
Þetta þýðir að laun eru greidd út fyrsta virka dag hvers mánaðar nema ef fyrsti dagur mánaðar beri upp á frídegi.
Námsleyfasjóðir auglýsa ekki eftir umsóknum fyrir skólaárið 2020-2021 vegna stöðu sjóðanna
Eftirfarandi bókanir voru gerðar á fundi fræðslunefndar 30. mars sl.
1. Staða námsleyfasjóðs sérmenntaðs starfsfólks Akureyrarbæjar
Bókun:
Með vísan til stöðu námsleyfasjóðs sérmenntaðs starfsfólks Akureyrarbæjar samþykkir fræðslunefnd Akureyrarbæjar að auglýsa ekki eftir umsóknum um styrki vegna náms á árunum 2020-2021.
2. Staða námsleyfasjóðs embættismanna Akureyrarbæjar
Bókun:
Með vísan til stöðu námsleyfasjóðs embættismanna Akureyrarbæjar samþykkir fræðslunefnd Akureyrarbæjar að auglýsa ekki eftir umsóknum um styrki vegna náms á árunum 2020-2021.
Nýjung fyrir Vinnustund. Þróaður hefur verið sjálfsþjónustuvefur fyrir snjallsíma sem er tenging við Vinnustund. Vefslóðin er smastund.akureyri.is og gildir sami aðgangur og að Vinnustund. Það tekur smástund að opna vefinn í fyrsta skiptið.
Stuttar leiðbeiningar má finna hér.
Ábendingar og spurningar skulu sendar í tölvupósti á kristjana@akureyri.is eða jonsb@akureyri.is
Að mörgu þarf að huga varðandi fjarfundamenningu. Tæki og tól þurfa að vera til staðar en einnig þarf að gæta að jafnri stöðu fundarmanna og að allir þekki hvernig nálgast skal fundarsköp á fjarfundum. Hagnýtan bækling um fjarfundamenningu má nálgast hér.
Bæklingurinn er hluti af afurð verkefnis sem Þekkingarnet Þingeyinga ásamt SÍMEY fékk styrk fyrir á síðasta ári og bar heitið fjarfundamenning. Meginmarkmið verkefnisins var að auka og efla þekkingu og notkun kjörinna fulltrúa á Eyþingssvæðinu á fjarfundum. Ef starfsmenn vilja kynna sér meira um verkefnið og/eða nálgast meira efni er tengist fjarfundum þá er hægt að nálgast það hér.
Við bendum einnig á hnappinn Vellíðan starfsfólks í samkomubanni en þar má nálgast fleiri gagnlegar upplýsingar vegna fjarvinnu ásamt ýmsu efni um vellíðan, tilfinningar og fleira.
Nýr hnappur á starfsmannavef og leiðbeiningar fyrir starfsfólk
Nú hefur nýjum hnapp verið bætt við á starfsmannavefnum sem ber heitir Vellíðan starfsfólks í samkomubanni.
Þar munu birtast áhugaverðir linkar, verkefni og fleira er snýr að vellíðan starfsfólks á tímum samkomubanns. Þar er nú þegar að finna kennslumyndbönd um Teams, gullmolar frá Guðrúnu Snorradóttur og verkefni um tilfinningar.
Inná hnappinn Covid-19 upplýsingar fyrir starfsfólk eru komnar leiðbeiningar fyrir starfsfólk þar sem ýmsum atriðum er snúa að réttindum starfsfólks er svarað. Leiðbeiningarnar eru á nokkrum tungumálum.