Tillaga Kristins E. Hrafnssonar og Studio Granda valin

Steve Christer frá Studio Granda og Kristinn E. Hrafnsson.
Steve Christer frá Studio Granda og Kristinn E. Hrafnsson.

Niðurstaða dómnefndar í samkeppni um nýtt kennileiti fyrir heimskautsbautinn í Grímsey var tilkynnt í dag, mánudaginn 10. mars kl. 14 í Menningarhúsinu Hofi. Dómnefnd var einróma um vinningstillöguna sem er unnin af Kristni E. Hrafnssyni og Studio Granda. Samkeppnin var opin hönnuðum, arkitektum og myndlistamönnum. Skilafrestur gagna var til 31. janúar 2014 og verðlaunaféð var 1.000.000 kr.

Forsaga málsins er sú að árið 2011 sótti Akureyrarstofa um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um gerð nýs tákns eða kennileitis fyrir heimskautsbauginn í Grímsey. Ákveðið var að hluta verkefnið niður í þrjá áfanga og er búið að fá styrk í fyrstu tvo áfangana eða samtals um 2.5 milljónir króna. Mótframlag Akureyrarbæjar og samstarfsaðila er jafnhá upphæð.

Nú þegar niðurstaða er fengin verður unnið með vinningshöfum að útfærslu vinningstillögunnar í samstarfi við verkkaupa, verkið smíðað og því komið fyrir í Grímsey. Ekki verður hægt að hefja þennan áfanga fyrr en búið er að afgreiða umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða á þessu ári en áframhald verkefnisins byggist á að styrkur fáist í síðasta áfanga þess.

Leitað var að myndrænu tákni fyrir eyjuna sem gæti orðið að aðdráttarafli í sjálfu sér og hægt væri að nota á ólíka vegu, t.d. við gerð minjagripa. Kennileitinu er ætlað að styrkja Grímsey og stöðu hennar sem nyrsta odda Íslands, á heimskautsbaugnum. Unnið verður með vinningshafa að frekari hönnun og útfærslu tillögunnar. Samkeppnin fór fram samkvæmt samkeppnislýsingu, fylgigögnum og samkeppnisreglum Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

Í skýringartexta með verkinu frá vinningshöfum segir meðal annars:

HRINGUR OG KÚLA / ORBIS ET GLOBUS / CIRCLE AND SPHERE

VERKIÐ er grásteinskúla sem er 3 m í þvermál. Kúlunni er ætlað að standa á heimskautsbaugnum þar sem hann er á hverjum tíma en skv. útreikningum færist hann til á hverju ári vegna svokallaðrar pólriðu jarðar. Kúlunni er velt á rétta breidd að vori ár hvert og þokast hún þannig norður af eyjunni nálægt árinu 2047. Árleg færsla er ýmist í norður eða suður og því er um mjög hægfara ferli að ræða en um þessar mundir er hreyfingin að snúast í suður og verður svo næstu 10 árin eða svo. Þá snýst hún til norðurs þar til ekki verður komist lengra, en á stuttu árabili mun hún standa þar kyrr áður en hún tekur síðustu suður- og norðursveifluna og fer endanlega út af eyjunni.

VERKIÐ er grásteinskúla sem er 3 m í þvermál. Kúlunni er ætlað að standa á heimskautsbaugnum þar sem hann er á hverjum tíma, en skv. útreikningum færist hann til á hverju ári vegna svokallaðrar pólriðu jarðar. Kúlunni er velt á rétta breidd að vori ár hvert og þokast hún þannig norður af eyjunni nálægt árinu 2047. Árleg færsla er ýmist í norður eða suður og því er um mjög hægfara ferli að ræða, en um þessar mundir er hreyfingin að snúast í suður og verður svo næstu 10 árin eða svo. Þá snýst hún til norðurs þar til ekki verður komist lengra, en á stuttu árabili mun hún standa þar kyrr áður en hún tekur síðustu suður- og norðursveifluna og fer endanlega út af eyjunni.

KÚLAN sýnir einungis legu heimskautsbaugsins. Sá sem gengur í kringum hana hefur farið norður fyrir heimskautsbaug og suður fyrir hann aftur. Árleg tilfærsla kúlunnar getur verið dagsettur atburður ár hvert, en þá taka eyjarskeggjar og gestir sig saman og koma henni á sinn stað með sameiginlegu átaki og nauðsynlegum hjálpartækjum. Ferill kúlunnar frá 2014 og til endaloka verður lagður með söguðum rekavið og þannig tryggt að allir komist að henni frá vegarslóðanum sem liggur út á Eyjarfót. Rekaviðarlagður stígurinn yrði að lokum það eina sem eftir væri til vitnis um heimskautsbauginn í Grímsey.

VEGARSLÓÐI úr þorpinu og norður eftir eyjunni verður hluti verksins og gerður að góðum göngustíg. Stígurinn sýnir þannig færslu heimskautsbaugsins norður eftir eyjunni og er hann um 2.5 km á lengd frá áningarstaðnum við flugvöllinn, en 3,7 km frá höfninni/þorpinu, en baugurinn kom fyrst inn í þorpið um 1810 og hefur því færst þessa leið á rúmum 200 árum. Þessa færslu á heimskautsbaugnum má merkja með ártölum í rekaviðardrumba á stígnum, en með því móti stækkar það áhugaverða svæði sem gestir mundu ella fara um eyjuna og kúlan fengi hlutdeild í því stórkostlega sjónarspili sem náttúran sýnir með síbreytileika allra hluta. Allt er á hreyfingu og áhrifasvæði heimskautsbaugsins verður þannig mun stærra en einn lítill og fastur punktur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan