Þorrablót verður haldið í Grímsey á morgun, föstudag, í félagsheimilinu Múla kl. 20.00. Skemmtidagskráin er sneisafull af heimatilbúnum skemmtiatriðum eyjarskeggja sem munu vafalaust vekja mikla katínu. Veislustjórn verður í höndum Birgis Arasonar og hljómsveitin Í sjöunda himni leikur fyrir dansi fram á rauða nótt.
Nánari upplýsingar og miðapantanir eru í síma 862 3150.