Skipulagsráð Akureyrarbæjar kynnir, í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.
Breytingin felur í sér að athafnarsvæði AT20 stækki úr 0,4 ha í 1,4 ha og að innan svæðisins verði heimilt að reisa allt að 6 vindmyllur.
Hægt er að skoða tillöguna hér.
Frekari upplýsingar eru veittar á skipulagssviði Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. 3. hæð.
Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar hjá Akureyrarbæ hér.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem eru birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar.
19. maí 2021
Sviðsstjóri skipulagssviðs