Í vikunni sem leið fengu fjórir samstarfsaðilar, þ.e. Skógrækt ríkisins, Norðurlandsskógar, Skógræktarfélag Eyfirðinga og Akureyrarbær, styrk úr Orkusjóði til að kanna hagkvæmni þess að kynda byggðina í Grímsey með viðarkurli.
Þorpið í Grímsey er fjölmennasti þéttbýliskjarni á Íslandi sem þar sem allt húsnæði er kynt með brennslu jarðefnaeldsneytis. Verkefnið felst í að kanna til hlítar möguleika á að nýta norðlenskt grisjunartimbur til að hita upp byggðina í Grímsey í stað olíukyndingar sem þar er nú.
Kannaðir verða ýmsir möguleikar, bæði fyrir miðlæga hitaveitu og stök hús, og tengingu nýs búnaðar við olíubrennara sem fyrir eru. Jákvæðar niðurstöður gætu leitt til samdráttar við notkun jarðefnaeldsneytis og að sama skapi aukið notkun vistvæns innlends orkugjafa í þess stað.
Rúnar Ísleifsson, skógræktarráðunautur hjá Skógrækt ríkisins og einn forsvarsmanna verkefnisins segir samstarfsaðila ætla að nýta sumarið til undirbúnings og hefjast svo handa við verkefnið sjálft í haust. ?Við ætlum að kanna nokkra kyndingarmöguleika. Verði niðurstaðan hagstæð að þá er ekki ólíklegt að í framtíðinni verði híbýli í Grímsey kynt með grisjunarvið, viðarpillum eða kurli, sem kæmi af Eyjafjarðarsvæðinu og Fnjóskadalnum? segir Rúnar. ?Ætlunin er að verkefninu verði lokið í ársbyrjun 2013.?
Sjá heimasíðu Skógræktar ríkisins.