Byggðastofnun auglýsti í gær viðbótaraflaheimildir án vinnsluskyldu fyrir Grímsey, allt að 300 þorskígildistonn fyrir fiskveiðiárin 2024/2025, 2025/2026 og 2026/2027.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir það vera ákaflega ánægjulegar fréttir að Grímseyingum hafi verið veitt undanþága frá vinnsluskyldu þegar kemur að úthlutun á sértækum byggðakvóta.
„Það er mikilvægt fyrir íbúa Grímseyjar að búa við fyrirsjáanleika eins og önnur samfélög og þessi niðurstaða verður til þess að renna styrkari stoðum undir byggðina í eyjunni. Ef sjómenn í Grímsey hefðu ekki lengur heimild til að stunda fiskveiðar eins og þeir hafa gert mann fram af manni frá því land byggðist þá væru forsendur fyrir búsetu þar brostnar. Sjávarútvegur í Grímsey hefur átt undir högg að sækja og ég gleðst yfir því að undanþága frá vinnsluskyldu sé veitt því fiskinum þarf alltaf að koma til lands sem fyrst, með einum eða öðrum hætti, svo verðmæti hans séu sem mest,“ segir Ásthildur Sturludóttir.
Grímseyingar geta sótt um viðbótaraflaheimildir í gegnum umsóknargátt á heimasíðu Byggðastofnunarinnar fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 10. desember 2024.
Auglýsingu Byggðastofnunar um viðbótaaflaheimildir í Grímsey er að finna hér.