Kynning á sumarlestraráskorun 2024

Fimmtudaginn 6. júní frá klukkan 16-18 ætlar Eydís barnabókavörður að vera inni í barnadeild og kynna sumarlestraráskorun almenningsbókasafna 2024.

Endilega kíkið við, fáið sumarlestursheftið og kynningu á því hvernig áskorunin og spilið virkar.

Lestraráskorunin byrjar 3. júní og er til 29. ágúst.

Í ár erum við með lestraráskorun og ofurhetjuspil.

Í sumar hvetjum við öll til að setja á sig ofurhetjuskikkjuna og taka þátt í Sumarlestri almenningsbókasafnanna. Lestur veitir ofurkraft, því meira sem þú lest, því meira lærir þú og skilur.

Á Amtsbókasafninu eða öðru almenningsbókasafni færðu sumarlestursheftið. Það inniheldur 6 lestraráskoranir og skemmtilegt ofurhetjuspil. Í hvert sinn sem áskorun lýkur kvittar foreldri/forráðamaður og lestrarhetjan heimsækir bókasafnið með staðfestinguna til þess að fá límmiða til að líma á spilaborðið.

Lestrarhetjan til bjargar í Skarkalabæ
Spilaborðið er mynd af Skarkalabæ. Í Skarkalabæ er allt í rugli! Það þarf að bjarga fólki og furðuverum úr bráðri hættu og það strax! Þú getur verið lestrarhetjan sem bjargar deginum með aðal ofurkraftinum, orðaforðanum! Spilið er samvinnuspil þar sem spilarar hjálpast að við að bjarga fólki og furðuverum í vanda. Spilarar skiptast á að vera hetjan á meðan hinir giska á hverjum/hverju lestarhetjan ætlar að bjarga á myndinni.
Með hverjum límmiða sjáum við enn betur hvað það er sem er í gangi í Skarkalabæ. Þannig stækkar spilið með hverri lestaráskorun sem lestarhetjan klárar í sumar.

Í lok sumars fögnum við góðum árangri með uppskeruhátíð þar sem öll eru velkomin sem tóku þátt í sumarlestrinum.

 

*Myndirnar eru eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og borðspilið er hannað af Steingerði Lóu Gunnarsdóttur. Hugmyndavinnan er unnin í samstarfi við vinnuhóp skipaður af barnabókavörðum á almenningsbókasöfnum um allt land og er efnið gefið út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan