Viðurkenningar fyrir góðan árangur í Lífshlaupinu 2025

Nýlega afhenti heilsuráð Akureyrarbæjar viðurkenningar fyrir góðan árangur og enn þá betri frammistöðu vinnustaða og stofnanna Akureyrarbæjar í Lífshlaupinu 2025.

Líkt og áður voru veittar viðurkenningar í þremur flokkum, fyrir flesta daga í Lífshlaupinu í flokki vinnustaða með 10-29 starfsmenn, 30-69 starfsmenn og 70 eða fleiri starfsmenn.

Skrifstofa fræðslu- og lýðheilsusviðs, Oddeyrarskóli og Lundarskóli hlutu viðurkenningar í ár fyrir góðan árangur meðal stofnanna Akureyrarbæjar. Þessir vinnustaðir náðu líka góðum árangi á landsvísu. Í sínum flokkum á landsvísu hafnaði…

  • Skrifstofa fræðslu- og lýðheilsusviðs í 4. sæti af 757 liðum í keppni vinnustaða með 10-29 starfsmenn,
  • Oddeyrarskóli í 10. sæti af 451 liðum í keppni vinnustaða með 30-69 starfsmenn, og
  • Lundarskóli í 8. sæti af 254 liðum í keppni vinnustaða með 70 starfsmenn eða fleiri.
    Nánar um úrslit í Lífshlaupinu hér.

Heilsuráð óskar öllum ofan töldum til hamingju með góðan árangur og þakkar þeim fyrir að vera öðrum til fyrirmyndar og hvetur alla, líka land og þjóð til að halda áfram að hlúa að hreyfingu og heilsueflingu inn í sumarið og að eilífu.

Á meðfylgjandi myndum eru fulltrúar vinnustaðanna sem hlutu viðurkenningar þetta árið.

 

 

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan