Upplýsingar um viðburð
Seinna ritlistakvöld Ungskálda verður miðvikudagskvöldið 2. október á LYST í Lystigarðinum frá kl. 20-22.
Að þessu sinni er leiðbeinandinn Ævar Þór Benediktsson sem er einn afkastamesti og vinsælasti höfundur landsins á sviði barna- og unglingabóka. Verk hans hafa hlotið fjölda verðlauna bæði á Íslandi og erlendis. Ævar er einnig lærður leikari og hefur hann leikið bæði á sviði og í sjónvarpsþáttum en einnig framleitt sitt eigið efni fyrir útvarp og sjónvarp. Frekari upplýsingar um Ævar og hans verk er að finna á heimasíðu hans.
Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og því að kostnaðarlausu. Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk.
Veitingar í boði fyrir skráða gesti.
Skráning hér
Skráning hér
Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.
___________________________________
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.