Upplýsingar um viðburð
Langar þig til að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félgsskap?
Á nýju ári fer Amtsbókasafnið aftur af stað með handavinnuklúbb, sem öllum er velkomið að taka þátt í, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.
Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:30. Guðrún Hulda Sigtryggsdóttir, bókavörður, verður á staðnum með kaffi, handavinnublöð og -tímarit. Athugið, ekki er um kennslu í handavinnu að ræða, heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis. Allir eru velkomnir með prjóna, heklunálar og aðra handavinnu. Hópurinn mun hittast næst þann 13. mars.
Hópurinn verður með aðstöðu á 1. hæð safnsins, þar sem Orðakaffi er staðsett.
Engin þörf er á að skrá sig í hópinn, nóg er að mæta á staðinn.
Handavinnuklúbburinn er á Facebook.
Hópurinn mun hittast á eftirfarandi dögum:
- 16. janúar
- 30. janúar
- 13. febrúar
- 27. febrúar
- 13. mars
- 27. mars
- 10. apríl
- 24. apríl
- 8. maí
Allir hjartanlega velkomnir!