Upplýsingar um viðburð
Þekkir þú barn sem hefur gaman af að spila?
Á nýju ári fer Amtsbókasafnið aftur að stað með spilaklúbb fyrir börn á aldrinum 9-13 ára. Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:30. Næsti spilafundur þessar árs verður haldinn miðvikudaginn 6. febrúar kl. 17:00. Hrönn Björgvinsdóttir, bókavörður, mun leiða hópinn. Lengd hvers spilafundar fer svolítið eftir spili hverju sinni.
Allir krakkar á aldrinum 9-13 ára eru hjartanlega velkomnir! Ekkert þátttökugjald.
Engin þörf er á að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.
Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi spilaklúbbsins í hóp á Facebook. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu: hronnb@akureyri.is
Spilaklúbburinn mun hittast á eftirfarandi dögum:
- 9. jan.
- 23. jan.
- 6. feb.
- 20. feb..
- 6. mar.
- 20. mar.
- 3. apr.
- 17. apr.
- 15. maí
Sjáumst hress!