Upplýsingar um viðburð
![Fiske hátíðin 2022](/static/calendar/images/md/submit_1641223242.jpg)
Á afmæli Daniel Willard Fiske þann 11. nóvember ár hvert, er haldið upp á daginn með hátíðardagskrá og veglegu kökuhlaðborði.
Fiske var ríkur amerískur fræðimaður og skákáhugamaður. Hann sigldi fram hjá Grímsey og heillaðist af lífsbaráttu eyjabúa og áhuga þeirra á skák. Hann ákvað því að gefa hverju heimili í Grímsey skáksett auk þess sem hann gaf samfélaginu talsverða peningaupphæð til að styðja þá til framtíðaruppbyggingar í eyjunni, einnig veglegt bókasafn, bókaskápa og muni sem finna má m.a. sýningu í flugstöðinni í Grímsey.