Strandveiðar

Í sjónum í kringum Grímsey er mikið af fiski og það er því auðvelt fyrir þá sem eru með réttan útbúnað að veiða t.d. þorsk og ufsa. Norðanmegin á eyjunni eru klettar en klettasillur og grýtt fjara eru aðgengilegar sunnanmegin, t.d. sunnan við gömlu vindmylluna. Einnig er gott að veiða við höfnina og varnargarðana þar. Hægt er að veiða við Grímsey mest allt árið.