Velferðarráð

1269. fundur 17. janúar 2018 kl. 14:00 - 16:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Erla Björg Guðmundsdóttir formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA
  • Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Öldrunarþjónusta - biðlistar 2016, 2017 og 2018

Málsnúmer 2016020149Vakta málsnúmer

Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar lagði fram yfirlit um fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými þann 1. október 2017 ásamt upplýsingum um fjölda umsækjenda á biðlista eftir dagþjálfun.

2.ÖA - breyting á dvalarrýmum í hjúkrunarrými

Málsnúmer 2016010087Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri ÖA, Halldór S. Guðmundsson, lagði fram og kynnti svör velferðarráðuneytisins dagsett 4. janúar 2018 við erindi ÖA þar sem óskað var eftir að breyta tveimur dvalarrýmum í tvö hjúkrunarrými.

Fram kemur í svarinu að velferðarráðuneytið hafnar erindinu en bendir á möguleika á að breyta tveimur dvalarrýmum í eitt hjúkrunarrými, eins og áður hefur verið gert.

3.Vínveitingaleyfi - leyfisbréf

Málsnúmer 2017080109Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri ÖA, Halldór S. Guðmundsson, lagði fram til kynningar leyfisbréf dagsett 19. desember 2017 vegna vínveitinga til handa Öldrunarheimilum Akureyrar.

4.Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 26. mál

Málsnúmer 2017120292Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að umsögn vegna frumvarps til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar þjónustuþarfir.
Velferðarráð samþykkir umsögnina.

5.Frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (samningur Sþ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 27. mál

Málsnúmer 2017120291Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að umsögn vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Velferðarráð samþykkir umsögnina.

6.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2017

Málsnúmer 2017010093Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit um úthlutun leiguíbúða á árinu 2017 og stöðu biðlistans um áramót. Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

7.Sérstakur húsnæðisstuðningur 2017

Málsnúmer 2017100005Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir útgjöld vegna sérstaks húsnæðisstuðnings á árinu 2017.

Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

8.Fjölsmiðjan á Akureyri - rekstrarsamningar 2012-2020

Málsnúmer 2014110246Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um endurnýjun samstarfssamnings.
Velferðarráð samþykkir endurnýjun samstarfssamnings við Fjölsmiðjuna á Akureyri.

9.Almennar íbúðir - lög nr. 52/2016 - stofnframlag - húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2016060056Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. janúar 2018 vegna endurskoðunar á húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar þar sem lagt er til að keypt verði sérfræðivinna við endurskoðunina.
Velferðarráð samþykkir tillöguna og vísar málinu áfram til bæjarráðs.

10.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um hækkun tímagjalds vegna NPA-þjónustu um 3,5% úr kr. 3.241 á klst. í kr. 3.355 frá og með 1. janúar 2018. Hækkunin miðast við áætlaða hækkun launakostnaðar á árinu 2018 í forsendum fjárhagsáætlunar Akureyrarkaupstaðar. Gert var ráð fyrir hækkuninni í tillögu að fjárhagsáætlun ársins 2018.

Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir tillöguna.

11.Beiðni um aukafjárveitingu vegna sérúrræðis í heimaþjónustu

Málsnúmer 2018010213Vakta málsnúmer

Lögð fram ósk sviðsstjóra búsetusviðs um 11 m.kr. aukafjárveitingu vegna tímabundins verkefnis í heimaþjónustu. Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við heimahjúkrun Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Samstarfssamningur er í vinnslu.

Velferðarráð samþykkir ósk um aukafjárveitingu fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarráðs.

12.Samstarfs- og þróunarsamningur um velferðartækni

Málsnúmer 2017050130Vakta málsnúmer

Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs kynnti innleiðingu eftirlitsbúnaðar í tilraunaskyni í skammtímavistunarúrræði sem rekið er í búsetukjarnanum í Þrastarlundi skv. þróunar- og samstarfssamningi við Símann.

Fundi slitið - kl. 16:30.