Velferðarráð

1223. fundur 03. febrúar 2016 kl. 14:00 - 16:53 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Róbert Freyr Jónsson varaformaður
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Valdís Anna Jónsdóttir
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Bryndís Dagbjartsdóttir fundarritari
Dagskrá
Valdís Anna Jónsdóttir S-lista mætti í forföllum Sigríðar Huldar Jónsdóttur.

1.Uppsögn leiguíbúða 2016 - áfrýjanir

Málsnúmer 2016010207Vakta málsnúmer

Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir félagsráðgjafi kynntu áfrýjun vegna uppsagnar á leiguhúsnæði bæjarins.
Áfrýjanir eru færðar í trúnaðarbók velferðarráðs.

2.Fjárhagserindi 2016 - áfrýjanir

Málsnúmer 2016010011Vakta málsnúmer

Anna Marit Níelsdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók velferðarráðs.

3.Notendaráð fatlaðs fólks á Akureyri

Málsnúmer 2012020024Vakta málsnúmer

Kynnt niðurstaða vegna umsóknar um styrk frá velferðarráðuneytinu vegna notendaráðs í málaflokki fatlaðra. Fyrstu skref rædd.
Velferðarráð lýsir yfir ánægju sinni með styrkveitingu frá velferðarráðuneytinu að upphæð kr. 1.100.000 til að stofna notendaráð í málaflokki fatlaðs fólks. Ráðið felur starfsfólki að vinna áfram að málinu.

4.Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2016

Málsnúmer 2016020003Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar kynnti húsnæðismál fjölskyldu fatlaðs barns.
Afgreiðsla einstaklingsmála er færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

5.Búsetudeild - einstaklingsmál 2016

Málsnúmer 2016020007Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri á búsetudeild og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar fóru yfir stöðu á biðlista eftir sértæku búsetuúrræði svo og stöðu nokkurra einstaklinga í búsetuþjónustu og fyrirhugaðar breytingar þeim tengdum.
Velferðarráð þakkar kynninguna og felur starfsmönnum að vinna málið áfram.

6.Öldrunarþjónusta Akureyrarbæjar - rekstrarúttekt

Málsnúmer 2015090082Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt um Öldrunarþjónustu Akureyrarbæjar - þróun, stöðu og framtíðarhorfur, unnin af KPMG í janúar 2016.

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, kynntu og svöruðu spurningum um samantekina.
Valur Sæmundsson V-lista vék af fundi kl. 15:52.

7.ÖA - stefna og starfsemi

Málsnúmer 2013010214Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju, tillaga framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, Halldórs Guðmundssonar, að endurskoðuðu skipuriti ÖA. Tillagan byggir á fyrra skipuriti en tekur mið af þeim breytingum sem gerðar hafa verið á síðustu árum.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu Halldórs Guðmundssonar að endurskoðuðu skipuriti Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

8.Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - rekstur

Málsnúmer 2015010160Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, Halldór Guðmundsson, kynnti hugmyndir og áform um að draga úr starfsemi ÖA yfir sumartíma, s.s. að draga tímabundið úr opnum rýmum vegna hvíldardvala og fullnýta ekki dagþjálfunarrými. Slíkar aðgerðir sem stæðu yfir í 5 vikur sumarið 2016, geta dregið úr launakostnaði vegna sumarafleysinga. Til að halda fullri nýtingu rýma á ársgrunni, mun þurfa að auka nýtinguna (yfirbóka) aðra mánuði ársins. Fjárhagslegur sparnaður gæti numið 2-2,5 millj. kr. en ókostirnir eru óvissa um hvaða áhrif slík aðgerð hefur á notendur, aðstandendur og aðra þætti þjónustukeðjunnar fyrir eldra fólk s.s. heimaþjónustu Akureyrarbæjar.

Ákvörðun um aðgerðir sem þessar þarf að taka núna vegna auglýsinga og ráðninga sumarafleysingafólks.
Velferðarráð óskar eftir að Öldrunarheimili Akureyrarbæjar fari í viðræður við búsetudeild Akureyrarbæjar, fulltrúa Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og Sjúkrahússins á Akureyri vegna fjölda rýma hvíldar- og skammtímainnlagna yfir sumartímann.

9.Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015120146Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri á búsetudeild og Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar kynntu erindisbréf aðgerðarhóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar sem bæjarstjórn ákvað að skipa 14. desember 2015.

10.Velferðarstefna 2014-2018

Málsnúmer 2015010191Vakta málsnúmer

Staða vinnu við gerð velferðarstefnu 2014-2018 kynnt og rædd.

Anna Lilja Björnsdóttir verkefnisstjóri velferðarstefnu sat fundinn undir þessum lið.

11.Stefna um nýsköpun og tækni í velferðarþjónustu

Málsnúmer 2015100006Vakta málsnúmer

Samstarfssamningur um styrkveitingu til samstarfsverkefna Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, búsetudeildar Akureyrarbæjar og velferðarsviðs Reykjavíkur, á sviði velferðartækni var kynntur.
Velferðarráð þakkar kynninguna.

12.Félagslegar íbúðir - framtíðarsýn

Málsnúmer 2016010150Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskar eftir tilnefningu frá velferðarráði í verkefnislið vegna byggingar íbúða sem eru á 3ja ára framkvæmdaáætlun bæjarins.
Velferðarráð tilnefnir Róbert Frey Jónsson sem fulltrúa sinn og Halldóru Kristínu Hauksdóttur til vara.

Fundi slitið - kl. 16:53.