Framkvæmdaráð

306. fundur 24. apríl 2015 kl. 09:00 - 11:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista boðaði forföll og einnig varamaður hennar Eiríkur Jónsson.

1.Kortlagning hávaða - aðgerðaráætlun

Málsnúmer 2010010129Vakta málsnúmer

Lögð fram aðgerðaráætlun gegn hávaða á Akureyri 2015-2020.
Framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti aðgerðaráætlunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

2.Umhverfisátak

Málsnúmer 2012080082Vakta málsnúmer

Kynntar hugmyndir frá hverfisnefndum fyrir árið 2015.
Framkvæmdaráð felur forstöðumanni umhverfismála áframhaldandi vinnu. Framkvæmdaráð óskar eftir að fulltrúi frá hverfisnefndum/-ráðum mæti á næsta fund nefndarinnar sem haldinn verður 8. maí nk.

3.Útboð framkvæmdadeildar árið 2015

Málsnúmer 2015020018Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir stöðu mála hvað varðar útboð, Smáverk - útboð árið 2015.
Framkvæmdaráð felur starfsmönnum áframhaldandi vinnu ásamt bæjarlögmanni.

4.Önnur mál í framkvæmdaráði 2015

Málsnúmer 2015010067Vakta málsnúmer

Ingibjörg Isaksen B-lista spurðist fyrir um skógrækt norðan Glerár, rusl á gámasvæði ásamt rusladöllum í göngugötu.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista spurðist fyrir um hvort áhugamannafélög gætu tekið þátt í skógrækt norðan Glerár. Einnig spurðist hann fyrir um hvort Akureyrarbær væri með hitamæla í malbikuðum götum. Vill fá að vita fyrir næsta fund hversu margir hundar og kettir eru skráðir í bænum og hver þróunin hefur verið á undanförnum árum.

Fundi slitið - kl. 11:50.