Fræðsluráð

22. fundur 18. desember 2017 kl. 12:30 - 15:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Brynhildur Pétursdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Þórhallur Harðarson tekur sæti sem nýr aðalfulltrúi D-lista í fræðsluráði í stað Baldvins Valdemarsonar. Þórhallur komst ekki á fundinn.
Fræðsluráð þakkar Baldvini kærlega fyrir gott samstarf.

1.Upplýsingar um dagvistunar- og leikskólamál

Málsnúmer 2017010168Vakta málsnúmer

Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fór yfir stöðuna á innritun í leikskóla og stöðu á málaflokknum.

Akureyrarbær hefur nú samið við Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhrepp um að fá að nýta þau leikskólapláss sem þar eru laus til að mæta fyrirliggjandi þörf fyrir þá sem geta nýtt sér það og draga þannig úr fjölda barna á biðlista. Þá verður áfram leitað leiða til mæta aukinni þörf fyrir dagforeldra.

2.Leikskólar og staða barnafólks

Málsnúmer 2017120035Vakta málsnúmer

Erindi sem barst í viðtalstíma bæjarfulltrúa þann 30. nóvember 2017.

Dóra Rún Kristjánsdóttir, Eydís Eyþórsdóttir og Hafdís Ólafsdóttir mættu í viðtalstíma bæjarfulltrúa.

Þær voru með töluverðar áhyggjur yfir stöðu leikskólamála á Akureyri.
Fræðsluráð þakkar fyrir erindið.

Með tilvísan í lið 1 í fundargerðinni leitar fræðsluráð nú allra leiða til að finna lausnir á fyrirliggjandi stöðu í leikskóla- og dagvistarmálum.

Þá leggur fræðsluráð áherslu á framúrskarandi þjónustu og fagmennsku í öllu skólastarfi.

3.Sjúkrakennsla

Málsnúmer 2017040046Vakta málsnúmer

Kynnt afrit af svari mennta- og menningarmálaráðuneytis til foreldra varðandi sjúkrakennslu.

4.Breyttir fundartímar fræðsluráðs í janúar 2018

Málsnúmer 2017120402Vakta málsnúmer

Samkvæmt áætlun fundardaga átti að vera einn fundur hjá fræðsluráði í janúar, þann 15. janúar.

Formaður taldi nauðsynlegt að fjölga fundum í janúar og voru því lagðar til nýjar dagsetningar, mánudagurinn 8. janúar og mánudagurinn 22. janúar 2018.
Fræðsluráð samþykkir framlagða tillögu formanns.

Fundi slitið - kl. 15:00.