Bæjarstjórn

3490. fundur 02. mars 2021 kl. 16:12 - 16:25 Hamrar í Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Gunnar Gíslason
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - skipulagsráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga S-lista um breytingar á skipan fulltrúa í skipulagsráði:

Sindri Kristjánsson verði aðalfulltrúi og varaformaður í stað Orra Kristjánssonar. Orri Kristjánsson verði varafulltrúi í stað Ólínu Freysteinsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Kosning nefnda 2018-2022 - tilnefning í skólanefnd MA

Málsnúmer 2018060032Vakta málsnúmer

Tilnefning eins aðalfulltrúa og eins varafulltrúa í skólanefnd Menntaskólans á Akureyri.
Bæjarstjórn tilnefnir Helga Þorbjörn Svavarsson og Ólöfu Ingu Andrésdóttur.

3.Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarbæ - endurskoðun - síðari umræða

Málsnúmer 2017020113Vakta málsnúmer

Endurskoðuð lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarbæ tekin til seinni umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum 4. febrúar sl. og fyrri umræða í bæjarstjórn fór fram 16. febrúar sl.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti málið.

Í umræðum tóku til máls Þórhallur Jónsson og Sóley Björk Stefánsdóttir.
Meirihluti bæjarstjórnar samþykkir framlagða lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarbæ.

Þórhallur Jónsson D-lista greiðir atkvæði á móti.

4.Miðbær - uppfærsla deiliskipulags

Málsnúmer 2017010274Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 24. febrúar 2021:

Lögð fram endurskoðuð tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar. Hafa verið gerðar ýmsar breytingar á tillögunni til að koma til móts við athugasemdir og umsagnir sem bárust við drög að tillögu sem kynnt var í desember sl. auk þess sem niðurstaða vindgreiningar hefur haft áhrif á útfærslu byggingarreita, gróðurskipulags og skilmála.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Þórhallur Jónsson kynnti tillögu skipulagsráðs.

Í umræðum tóku til máls Hilda Jana Gísladóttir og Andri Teitsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2021010534Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 18. og 25. febrúar 2021
Bæjarráð 18. febrúar 2021
Frístundaráð 24. febrúar 2021
Fræðsluráð 15. febrúar 2021
Skipulagsráð 24. febrúar 2021
Stjórn Akureyrarstofu 11. febrúar 2021
Umhverfis- og mannvirkjaráð 12. febrúar 2021
Velferðarráð 17. febrúar 2021

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 16:25.