Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

510. fundur 24. september 2014 kl. 13:00 - 14:35 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Fiskitangi 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090185Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. september 2014 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Útgerðarfélags Akureyringa ehf., kt. 500209-0620, sækir um leyfi til að breyta suð-vestur hluta byggingar í verkstæði, stækka hurð á vesturhlið, setja glugga á suðurhlið, stækka op í loftaplötu og setja upp milliveggi. Um er að ræða færslu á verkstæði sem þegar er til staðar á öðrum stað í byggingunni nr. 4 við Fiskitanga.
Meðfylgjandi eru tillöguteikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri samþykkir að gefa út takmarkað byggingarleyfi fyrir breytingunum.

2.Flatasíða 6 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090170Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. september 2014 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Guðlaugs Óla Þorlákssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 6 við Flatasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Glerárgata 28 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. september 2014 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Glerárgötu 28 ehf., kt. 700805-3010, sækir um breytingar á húsi nr. 28 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Strandgata 27 - umsókn um girðingu og bílastæði

Málsnúmer 2014090011Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2014 þar sem Einar Skúli Hjartarson sækir um leyfi fyrir girðingu og nýju bílastæði á lóð nr. 27 við Strandgötu. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og teikning.

Skipulagsstjóri samþykkir umbeðið bílastæði og girðingu á norður- og vesturlóðarmörkum. Einnig er samþykkt girðing á austur- og suðurlóðarmörkum með fyrirvara vegna ákvæða deiliskipulags um endanlega afmörkun lóðarinnar til austurs og suðurs.

5.Njarðarnes 8 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á 2. hæð

Málsnúmer 2012090192Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. september 2014 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Car-x ehf., kt. 490304-3390, sækir um uppfærslu á brunaviðvörunarkerfi fyrir hús nr. 8 við Narðarnes. Meðfylgjandi er Brunahönnun.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

6.Kjarnagata 25 - byggingarleyfi

Málsnúmer BN060291Vakta málsnúmer

Erindi dagasett 18. september 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. SS byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnagötu 25. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Súluvegur 1 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2013060128Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. september 2014 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Mjólkursamsölunnar ehf., kt. 540405-0340, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Súluvegi 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

 

Fundi slitið - kl. 14:35.