Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

343. fundur 06. apríl 2011 kl. 13:00 - 14:45 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Kristján Þorsteinsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Eyjafjarðarbraut - 147549 - Akureyrarflugvöllur skýli 11 - breytingar

Málsnúmer 2011020090Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. mars 2011 þar sem Steinmar Rögnvaldsson f.h. Norlandair ehf., kt. 590106-2830, óskar eftir samþykkt á breytingum á áður samþykktum teikningum fyrir flugskýli 11 við Eyjafjarðarbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Rögnvaldsson dagsettar 16. mars 2011. Innkomnar nýjar teikningar 30. mars 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

2.Hamrar 1 - umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2011020074Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. febrúar 2011 þar sem Valþór Brynjarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi til að breyta lausri kennslustofu í starfsmannaaðstöðu að Hömrum 1 (landnr. 146935). Innkomin umsögn frá Vinnueftirlitinu 21. febrúar 2011. Innkomnar nýjar teikningar 30. mars 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra veitir tímabundið leyfi til eins árs.

3.Hamrar 2 - umsókn um byggingarleyfi og breytingar.

Málsnúmer 2011020072Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. febrúar 2011 þar sem Valþór Brynjarsson f.h Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir aðstöðuhús að Hömrum 2. Sótt er um tímabundið stöðuleyfi fyrir húsinu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomin umsögn frá Vinnueftirlitinu 23. febrúar 2011. Innkomin umsögn frá Heilbrigðiseftirlitinu 23. febrúar 2011. Innkomnar nýjar teikningar 30. mars 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra veitir tímabundið leyfi til eins árs.

4.Hringteigur 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011030191Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 25. mars 2011 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Fasteigna ríkissjóðs, kt. 690981-0259, sækja um leyfi til að gera breytingar á brunavörnum á 8. áfanga VMA, tréiðnaðardeild við Hringteig 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorstein Geirharðsson.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

5.Möðruvallastræti 3 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer BN090192Vakta málsnúmer

Erindi dags. 25. febrúar 2011 þar sem Björgvin L. Pálsson sækir um að vera byggingarstjóri við breytingar að Möðruvallastræti 3.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

6.Tungusíða 24 - byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2011030132Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. mars 2011 þar sem Máni Jökulsson f.h. Gunnars Sveinssonar sækir um byggingarleyfi fyrir ýmsum breytingum innanhúss á húsinu nr. 24 við Tungusíðu. Einnig er sótt um leyfi fyrir skúr sem var byggður af fyrri eiganda. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason dagsettar 9. mars 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

7.Réttarhvammur 3 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer BN110026Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2011 þar sem Sigurgeir Svavarsson ehf., kt. 680303-3630, sækir um að vera byggingarstjóri yfir breytingum á húsinu nr. 3 við Réttarhvamm. Umboð hefur Sigurgeir Svavarsson.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

8.Austursíða 2 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer 2011030159Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. mars 2011 þar sem Sigurgeir Svavarsson ehf., kt. 680303-3630, sækir um að vera byggingarstjóri yfir breytingum á húsinu nr. 2 við Austursíðu. Umboð hefur Sigurgeir Svavarsson.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

9.Brekkugata 1b - breyting á skráningu

Málsnúmer 2011030190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. mars 2011 þar sem Þórhallur Matthíasson óskar eftir að breytingar verði gerðar á skráningu á eign sinn nr. 1b við Brekkugötu. Sjá skilgreiningu í bréfi.

Staðgengill skipulagsstjóra hafnar erindinu, þar sem fjórða hæð hússins annars vegar og önnur og þriðja hæð hins vegar, uppfylla ekki kröfur sem gerðar eru til sjálfstæðra íbúða samkvæmt byggingarreglugerð.

10.Geislagata 9 - umsókn um byggingarleyfi - breytingar 1. hæð

Málsnúmer 2011030153Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. mars 2011 þar sem Valþór Brynjarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 1. hæð í Ráðhúsinu að Geislagötu 9. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar nýjar teikningar 5. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið. Vísað er til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar þeim tilmælum að nú þegar verði hafist handa við að byggja stigahús norðan hússins í samræmi við samþykktar teikningar þar sem um öryggismál er að ræða.

11.Þingvallastræti 23. - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer BN100241Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 1. apríl 2011 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Þingvangs ehf., kt. 671106-0750, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af breytingum á húsinu að Þingvallastræti 23. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

12.Kaupangur/Mýrarvegur - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011020114Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. febrúar 2011 þar sem Gísli Kristjánsson f.h. Rakarastofu Sigvalda ehf., kt. 480201-3880, sækir um byggingarleyfi til breytinga og lokunar á milli rýma 0116 og 0103. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristjánsson. Innkomin umsögn frá Vinnueftirlitinu 25. febrúar 2011. Innkomin ný teikning 28. febrúar 2011. Innkomið samþykki meðeigenda 5. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

13.Austursíða 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á mátlínum 5-8 og 15-17

Málsnúmer 2011030159Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. mars 2011 þar sem Ragnar A Birgisson f.h. Reita 1, kt. 510907-0940, sækir um leyfi fyrir breytingum innanhúss á milli mátlína 5-8 og 15-17 að Austursíðu 2. Meðfylgjandi eru reyndarteikningar af húsinu og gátlisti eftir Ragnar A Birgisson. Innkomnar nýjar teikningar 6. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

14.Hjalteyrargata 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir rampa

Málsnúmer 2011030067Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2011 þar sem Atli Jóhann Guðbjörnsson f.h. Leifs Eiríksson ehf., kt. 561205-0510, sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu ramps fyrir flutningabíla norðan við Hjalteyrargötu 2. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Atla Jóhann Guðbjörnsson. Innkomnar nýjar teikningar 5. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

15.Glerárgata 3b og Strandgata 11b - umsókn um breytingu á notkun

Málsnúmer 2010100156Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. október 2010 frá Ágústi Hafsteinssyni f.h. arkitektastofunnar Forms ehf., varðandi umsókn um breytingu á notkun Glerárgötu 3b og Strandgötu 11b úr atvinnustarfsemi í íbúðir.
Innkomnar nýjar teikningar 4. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:45.