Á fundi sínum 26. apríl sl. samþykkti íþróttaráð að veita viðurkenningu þeim vinnustað Akureyrarbæjar sem stæði sig best í átakinu Hjólað í vinnuna.
Íþróttaráð fagnar góðri þátttöku Akureyringa í átakinu, sem m.a. skilaði sveitarfélaginu í annað sæti í heildarstigakeppni sveitarfélaga. Íþróttaráð hyggst veita leikskólanum Pálmholti, Síðuskóla og Amtsbókasafninuviðurkenningu fyrir mjög góðan árangur í átakinu Hjólað í vinnuna 2012.
Amtsbókasafnið í góðu samstarfi við Héraðsskjalasafnið skráði tvö lið til
keppni - Skjalaskottur og Bókaorma - Myndirnar hér að neðan voru teknar á fyrsta degi átaksins :-)
Skjalaskottur sóla sig og safna andlegum styrk fyrir samkeppni ársins...!!!
Bókaormar brosa hringinn og hlakka til baráttunnar við brekkurnar...:-)