Vikuna 3.-7. september verður ,,Bók í bandi” á Amtsbókasafninu.
Tilefnið er alþjóðadagur læsis 8. september. Við tökum fram nokkrar bækur og hengjum upp, gestum okkar til fróðleiks og gleði. Bækurnar má lesa á staðnum eða fá lánaðar heim og við hvetjum lánþegana til að velja bækur og setja í bandið í stað þeirra sem teknar eru að láni.
Það er lítill vandi að finna bók í bandi :-)