Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

965. fundur 02. maí 2024 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Hrísmói 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024040551Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. apríl 2024 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Kötlu ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóðum nr. 11-17 við Hrísmóa. Innkomin gögn eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Matthíasarhagi 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024040571Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. apríl 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson f.h. Daða Jónssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á tveimur hæðum á lóð nr. 2 við Matthíasarhaga. Innkomin gögn eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Eyrarlandsvegur 30 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024040629Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. apríl 2024 þar sem Kári Magnússon f.h. Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir gámahúsi með snyrtingum á lóð nr. 30 við Eyrarlandsveg. Innkomin gögn eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Þórunnarstræti 106 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024011410Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. apríl 2024 þar sem Rögnvaldur Harðarsson fyrir hönd Hrafnseyrar ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölgun íbúða í húsi nr. 106 við Þórunnarstræti. Innkomnar nýjar teikningar eftir Rögnvald Harðarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.