Skíðasvæðið opið í 113 daga og gestir tæplega 90 þúsund

Mynd af heimasíðu Hlíðarfjalls.
Mynd af heimasíðu Hlíðarfjalls.
Síðasta laugardag lauk formlegri opnun Hlíðarfjalls þennan veturinn á lokadegi Andrésar Andarleikanna sem tókust frábærlega með metþátttöku.
 
Skíðavertíðin hófst snemma í desember með flottum aðstæðum á gönguskíðasvæðinu og lyfturnar voru ræstar skömmu fyrir jól. Snjóalög héldust nokkuð góð í allan vetur og þegar mars gekk í garð byrjaði að snjóa hressilega sem dugði út apríl.
 
Skíðasvæðið var í heildina opið í 113 daga og gestafjöldi fór vel yfir 87 þúsund sem er mun meira en verið hefur síðustu ár.
 
Ennþá er talsverður snjór á svæðinu og skíðaæfingar halda áfram um sinn. Gönguskíðasvæðið verður troðið áfram á mánudögum og föstudögum meðan aðstæður leyfa.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan