Mikil ánægja er með Sundlaug Akureyrar meðal sundlaugargesta. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var á vegum íþróttaskors - Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni. Könnunin var framkvæmd í vor og var fjöldi sundlaugargesta spurðir álits.
Í ljós kom að 77,3% þeirra líkar aðstaðan í lauginni mjög vel en engum líkar hún illa eða mjög illa.
Því má segja að alls 99,3% aðspurðra líki aðstaðan vel eða mjög vel.
Gestir voru einnig spurðir hvernig þeim líki þjónustan í Sundlaug Akureyrar. 75,2% finnst þjónustan mjög góð og engum finnst hún slæm eða mjög slæm. Því má segja að alls 99,3% aðspurðra líki vel eða mjög vel sú þjónusta sem veitt er.
Almenn ánægja sundlaugargesta með Sundlaug Akureyrar mælist 99,3%.