Forsetakosningar fara fram laugardaginn 25. júní 2016. Kjörstaðir í Akureyrarkaupstað eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hríseyjarskóla og í Félagsheimilinu Múla Grímsey. Akureyrarkaupstað verður skipt í 12 kjördeildir, 10 á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Skipting kjósenda í kjördeildir fer eftir búsetu og eru kjósendur beðnir um að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa. Kjörfundur hefst á Akureyri, í Hrísey og í Grímsey klukkan 9:00 og lýkur eigi síðar en klukkan 22:00.
Upplýsingar um kjörstaði og kjördeildir.
Upplýsingar kjördeildir eftir götum.